Are you a lady ?

Two ladies out for tea ...

26.02.2008 15:01:05 / anna

Nýjir tímar - nýtt gettó:P

JÁ KÆRU LESENDUR NÆR OG FJÆR!
ÞAÐ hlaut að koma að þessum degi og hefur hann nú runnið upp....við viljum benda fólki að fara núna inn á www.getto109.bloggar.is ef þið viljið lesa meira um okkar frábæra og spennandi líf sem ætlar engan enda að taka;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 19:19:39 / aslaug

Kríli hæ, Kríli hó!

Já ég er til í að gera nýtt Gettó-blogg. Þetta er orðin alger vitleysa!! Læt þig um það elskan að velja eitthvað verðugt;) ...með góðri slóð!

Erum að fara að skrifa á nemendafélagsskýrteinin:D
-En ég er farin á fyllerý ;D;D

//áslaugkatrín

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 13:20:29 / anna

Fyrirspurn...

Jæja hvernig væri að fara að stofna nýtt blogg, er orðin þreytt á þessu central dæmi hérna, búið að týna ÖLLU gamla góða slúðrinu:'( en annars hvernig væri það???

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 19:18:22 / aslaug

Snjór ég hata þig - Laxness ég elska þig

Þetta er færsla sem átti að koma inn fyrir nokkrum dögum eða svo...ég hélt að AnnaHeiða væri búin að eitra fyrir síðinnu en þá var þetta bara vegna breytinga! :S

-Lauslátar konur eru ekki til. Það er hjátrú. Afturámóti eru bæði til kvennmenn sem sofa þrjátíu sinnum hjá einum karlmanni og kvennmenn sem sofa einu sinni hjá þrjátíu karlmönnum.

 (-Og konur sem sofa als ekki hjá manni.)

-Var að lesa Atómstöðina;)

Annars er BRJÁLAÐ veður, ÓGEÐSLEGUR snjór & VIÐBJÓÐSLEGA kalt. Þessi orð þýða = hlíðin er lokð...og ég vona að hún verið það líka í fyrramálið. Þó mér sé enginn vorkunn þar sem ég á nú bara að mæta í 2 tíma kl. 10:25. En að sjálfsögðu er mér vorkunn og á ekki að þurfa að mæta!

Árshátíðin er á föstudaginn, 2x Páll Óskar ball = heljarinnar djammerý. Eigum við að taka á þessu eins og seinast Dísa mín? Byrjaði í sjæningum í dag á sjálfri mér með dyggri aðstoð ömmu....sem var mjög hlessa yfir því hversu lítið ég kynni í snyrtifræði:S Síðan ætla ég í húðhreinsun á morgun..umm ég elska það! -&mig þegar ég er búin:* Hell to the yeah!

Ætlaði að mæta á þorrablót í Hálsasveitinni um helgina en sökum SNJÓS!!! komst ég ekki! *Leiðinleg*

-Maður tekinn fullur á traktor í Hálsasveit!!!! HAHAHAHA Ég sagði þér að fara varlega afi!! ;)

En þeim sem ég var búin að ætla að segja "spes" fréttirnar - þær eru víst ekkert spes lengur...og kannski ekki fréttir lengur. Thank Mr. God for that ok?

Missti af mikilvægu skipulagsbreytingasímtali í kveld. Allt að gerast get ég sagt ykkur. Hringi í þig snúllan mín:*** Djöfull hlakka ég til þessarar blessuðu ferðar.

Elín sysir var 19. ára á laugardaginn (bara svo þið vitið það). Hins vegar þurfið þið ekki að vita að ég á ennþá eftir að hringja í hana:S

-Hálsasveit stay edru!!! Þangað til ég kem heim ;)

Sakna þeirra sem ég sakna:***

-Þess má geta að það er ENGINN snjór hjá mér núna, ég er í góðu skapi, búin að versla föt (engun furða því á góða skapinu), á leiðinni á e-a Djúpu laug með stelpunum+Arndísi, er með Holtabrún 21 til foreldra (ömmu&afa)lausa yfir helgina, á leiðinni á árshátíð & ball með Páli Óskari & ætla að troða mig út af áfengi & hárkarli um helgina :D Hádíhó


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 13:35:51 / anna

SKYLDUMÆTING

Það er skyldumæting fyrir þá sem lásu þetta blogg að mæta í kvöld kl. 20:00 á kaffihúsið á Akranesi, Skrúðgarðurinn....!! segi ekki meira en að það sé þess virði;)

annars er hann Axel að fara að spila í kvöld í fyrsta körfuboltaleiknum sínum eftir langan tíma, vil ég óska honum til hamingju og vona að hann brotni ekki aftur eða eitthvað verra!

hins vegar hefur vikan verið ákaflega hröð að líða og klúðraði ég m.a. sálfræðiprófi í morgun en það er í lagi það eru nóg af verkefnum sem maður getur skilað! en hins vegar er fótboltinn einnig á fullu og það er t.d. leikur á föstudaginn, sunnudaginn, þriðjudaginn og svo sennilega sunnudeginum þar á eftir:S vonum ekki:S

en ég ætla að vera ógurlega samviskusöm og fara að læra:D og þið ætlið aðmuna að koma með 1000 kall og eyða kvöldinu í kaffihúsinu:D



» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 16:15:16 / anna

SLÚÐUR

já kæru lömb!

undur og stórmerki gerðust það er komið inn hrátt slúður;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 11:03:32 / anna

Flugvikur..

Blessaðir!

Í tilefni af nýja mánuðinum (febrúar) hef ég ákveðið að rita nokkrar vel valdar línur um atburði síðustu daga en þeir eru ógurlega fáir og óspennandi...held að punktafærsla sé málið:D

  • aglavega eru síðustu vikur búnar að vera afskaplegar rólegar og lítið gerst, þar sem fáir af hópnum fóru á ballið sem var hérna á föstudaginn...!
  • eeeen á föstudagskvöldið spilaði 2. flokkur kvenna við FH þar sem við töpuðum, enda áttum við flest allar lélegan leik en samt töpuðum við minna fyrir þeim en síðast svo ég meina eitthvað hlýtur að hafa batnað þótt svo að þetta hafi verið skelfilegur leikur...
  • helgin var ákaflega gjöful og kom ég út í stórum hagnaði...:)
  • á laugardagskvöldinu var svo ákveðið að fara í ævintýraleit sem endaði með að við Ási fundum ævintýrið sem verður ekkert sagt hér frá þar sem þetta er einkahúmor!
  • sunnudagurinn fór í vinnu og svo vélsleðaleikferð með Skaðvaldi og Ása og verð ég að viðurkenna að þetta var ógeðslega gaman þótt ég hafi litið ut eins og hálviti með hlífðargleraugun sem gerðu mig að brjáluðum vísindamanni...
  • og þess má geta að snillingurinn litli bróðir minn og vinir hans gerðu sér lítið fyrir og flugu upp í C-riðil í Íslandsmótinu í körfubolta og rúlluðu yfir KR-ing í dramatískum leik og mörðu sigur á Snæfelli og Val og rústuðu svo Hrunamönnum....STóra systir er afar stolt af litla bróður sínum og er enn reiðari út í ákveðna þjálfara sem horfa bra á stærð!!!:evil:
  • en þessi vika byrjaði svo með skóla og snjófótboltaæfingu þar sem mér leið eins og snjókalli að hlaupa og hér með vorkenni ég snjóköllum!!
  • á þriðjudeginum fór ég með meistaraflokk að keppa við Hauka í Hafnarfirði þar sem við kepptum okkar fyrsta leik í móti! við unnum þennan leik þrátt fyrir að leiknum lauk með jafntefli en þökk sé litla fuglinum á hliðarlínunni sem dæmdi eina furðulegustu rangstöðu á ævi minni, að við unnum ekki 3-2! annars vorum við sáttar með leikinn!
  • svo í gær var fátt gert annað en að rúlla frönsku og íslensku prófi upp og svo farið á æfingu og látið kokk elda fyrir okkur fótboltahetjurnar!:lol:
  • svo í dag er ég afskaplega sloj og er að fara í flaututíma, frekar stressuð þar sem síðustu dagar hafa engan veginn boðið upp á æfingar í flautu svo ég þarf að fara að æfa mig á þetta blessaða hljóðfæri ef ég ætla að klára miðprófið næsta vor eins og við stefnum á:)

Annars hafa þessar viku flogið svo hratt að ég hef ekki hugmynd um lengur hvaða dagur er í dag, en ef það væru ekki æfingar þá myndi ég halda að það væri komin apríl eða eitthvað álíka þar sem ég hef ekkert tímaskyn lengur:) en annars er planið að vera driver um helgina á þorrablótið þar sem ég nenni ekki að standa í veikindum um helgina! en Áslaug þú kemur á þorrablótið og allt það enda þurfum við að hittast og spjalla og dansa!!!

 Eeeeen SÆÆÆLLL eigum við að ræða þetta eitthvað frekar eða????:D

http://www.play.com/Music/CD/4-/3476689/-/Product.html?page=title&P36=7DEKGA

ég myndi aglavega viljað hafa verið þarna!!!:( 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 15:14:04 / aslaug

Að drepast úr leti...

:Swing Low Sweet Chariot / Eric Clapton    --- uppáhaldið mitt 

Hey peoplz! Eigum við að ræða þennan sgnjó eitthvað? Við stúlkurnar fórum semsagt ekki í skólann í dag....hringdi í MÍ í morgun & sagði þeim að bíllinn minn væri fastur fyrir sgnjóskafli! Sem er alveg satt en ég hefði ekki komist út úr götunni. Helga hafði reyndar gist á Ísó fyrir veðrinu en hún var líka föst!! Haha...en það var því lítið annað að gera en að skríða aftur upp í rúm & ég svaf til ég veit ekki að verða hvað? Er bara búin að borða óhollan mat & hanga á myspace! Hvað er í gangi? Verð að fara að rífa mig upp á rassgatinu & kannski gera eitthvað! Það er alveg nóg að læra en neineei Áslaug litla ákveður að gera alllt annað. Það er líka alveg ferlegt að við Helgz höfum ekkert farið í ræktina í langan tíma & þá fer allt úr skorðum :S

Fór á mitt fyrsta MÍ-ball á föstudaginn...það var spez. Nennti ekki að fara neitt fyrir ballið heldur hangsaði bara á Holtabrún21 m Arndísi & hafði mig til, hún skutlaði mér svo á Ísó & ég sá til þess að allir vel undir aldri í bílnum fengu að drekka:S En ballið minnti mig á grunnskólaball svo ég lét Arndísi sækja mig - tókum runkt & ég fékk mér sælu namminamm. Keyrðum síðan hana Amy heim í Hnífsdalinn & tókum Hjalta&Siggó með - H var hrezz á kantinum en við settum þau litlu börnin að sofa & fórum að fíflast sem endaði með því að Dísaskvíz sofnaði á mér kl. 4 :D

Á laugardaginn var hér í bæ þorrablót sem hefur haldist óbreytt frá 1944 & aðeins hjón eða ekkjur/ekklar mega fara. Ég sá um að skutla fyllibyttunum á blótið & passaði með Arndísi eftir að hafa borðað á þorrablótinu sem amma hérna á Holtastígnum var með. Ég var samt pínu eftir mig því ég var búin að borða hákarl ALLAN daginn - afi byrjaði á að gefa mér hann í morgunmat! Eins bestur & hákarlinn nú er þá smá ráð: EKKI Í *MORGUNMAT !!!

:Lay DownSallY / Eric Clapton

Það er búið að margbjóða mér á árshátíð í kveld....aldrei að vita hvað maður gerir;)

Ég er búin að sækja um vinnu vihú:D

Hins vegar er nú búið að moka - en ég kemst samt ekki í skólann úr þessu - var að uppgötva ofnæmi mitt fyrir sgnjó - bráðaofnæmi sko!

BALL á Laugardaginn á EDINBORG - Arndís SKAL með en ég hlakka mikið til. Strákar úr skólanum að spila=)

Síðan vil ég fá að vita allt um þetta öryrkjapartý! -og adamsklæði Arnars, fúlt að missa af því ;Þ

Knús&kossar úr Vetrarborg:D  (Ísafjörður)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 12:55:45 / anna

Aglir kolbrjálaðir af áfengisvímu (BFF)

Jæja kæru lesendur! nú fer marr kannski að rita hérna inn örfáar línur  þar sem ég er orðin þreytt á að lesa um hann þarna Heath Ledger gaur sem er víst orðin dauður greyið! en slúður er e-ð sem er alveg á fullu núna spurning um að það fari að koma að grófu slúðurhorni sem tengist Þórsaradjöfla rassaríðingum sem reyndar gleymdust:$ en sagan segir að hann sé að koma út úr skápnum með ágætum kennara sem er reyndar löngu komin út úr skápnum og er víst uppáhalds kennarinn hans...einnig má segja frá því að upptökur á Best of Öryrkjarnir eru nú algjörlega í uppnámi þar sem áætlunin var að fara upp í bústað að klára hann þar eeeeeeeeeeeen eins og svo ágætur samningur segir þá var ekkert vit í þessu!

annars það sem helst er hér að frétta á Skipaskaga að skólinn er 25% búin og á ég þá eftir 75% af skólagöngu minni hérna megin við Borgarfjörðinn! annars er ég byrjuð að kíkja á fótboltaæfingar eftir frekar klaufaleg meiðsl en ég get gert nokkurn veginn allt nema að skjóta bolta:( sem er frekar fúlt þar sem það er leikur nú á föstudaginn og ég hef ekki hugmynd hvernig löppin á mér er:( en kemur vonandi í ljós!

 svo kíkti ég í lítið Öryrkja partý um helgina þar sem var helvíti gaman og ég held að það gleymi því enginn þegar Arnar kom og vakti okkur kolbrjálaður af áfengisvímu vopnaður adamsklæðunum einum saman og tók nokkur spor og svona fyrir viðstadda...takk kærlega Arnar fyrir að redda kvöldinu:*

svo á laugardeginum var gert afskaplega lítið og ekkert en um kvöldið var ég að vinna á árshátíð Icelandair með henni Ester bak við þar sem við fengum meira að segja blikk frá manninum sem kom víst út úr skápnum þetta umrædda kvöld, við erum miður okkar ég segi ekki annað:(

svo á sunnudeginum var gert mest megnis lítið og takmarkað og svo tók þessi ágæta vika við...hef afskaplega lítið að segja annað en ég læt lokaorðin hér á eftir segja það sem segja þarf um asnaskap og annan kjánaskap...! 

 

Samningur um aftöku

Undirritaðir skrifa hér með undir aftökuskipun með tilliti til aðstæðna. Þau viðurkenna fúslega minnisleysi sitt og afsaka öll skakkaföll með áfengisleysi. Allur munnsöfnuður er á ábyrgð ÁTVR (sjá grein um ábyrgð áfengisnotkunar nr. 319,5). Undirrituð játa á sig öll þau óæskilegu afbrot sem hugsanlega gætu farið fram þetta ákveðna kvöld. Öll afbrot sem kosta peninga úr annarra manna vasa eru í alla staði á ábyrgð allra annarra en okkar.

undirrituð eru:

Þorvaldur Ingi Árnason

Anna Heiða Baldursdóttir    

í votta viðurvist:

Álfheiður Sverrisdóttir

Ester Harpa Vignisdóttir

*eftir helgina skuldar Ester okkur 14 milljónir vegna þess hve miklar skaðabætur og þynnkumata við skuldum.

 

Þetta er nefnilega svo hel sniðugt!! 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 19:30:42 / aslaug

Heath Ledger :´(

Hey babes! Ég er komin vestur aftur:) Rosa gaman að koma hitt heim! Er annars bara í sjokki núna! Fór & heimsótti Arndísi í vinnuna til að ræða við hana um það að Heath Ledger skuli vera dáinn!!! Ég sá þetta ekki fyrr en í mogganum í dag....líður bara illa - hann var svo góður leikari---en mér er nú næstum sama um það -Hvað hann var *sætur*.

En ég fór og heimsótti stelpurnar í sumaklúbbnum í sumarbústað á föstudaginn - það var gaman:D Eitthvað fór þetta stelpupartý annars útum þúfur! En síðan kíkti ég til Hrundar á laugardaginn það var líka gaman - mikið af Rvk-ingum - ég gisti hjá henni & kíkti svo í 10mín á útsölur í Rvk - náði að kaupa ótrúlega mikið á þessum 10mín;)

En ég er ekkert búin að drekka yfir mig eftir þessa helgi - er bara  í enn meira stuði en það er þorrablót hjá Menntaskólanum á föstudaginn & svo er ball  á Edinborg á laugardaginn skilst mér;) Jeah baby!  Ég var einmitt að gera 1.stk auglýsingu fyrir hana Helgu Guðrúnu í dag - & hún var líka svona ánægð með hana:) Vill endilega setja mig í auglýsinganefnd - en það finnst mér nú vera of langt yfir strikið farið;) En þú veist Helga að ég tek 5000kr.- fyrir stykkið :Þ

Ég er komin með bílinn aftur - karlinn farinn á sjóinn svo ég hef bílinn allavega í viku - Meggla (nýja orðið sem ég lærði í Borgarfirði um helgina;))

Svo fer nú að koma slúður inn bráðlega....það er víst allt að gerast hjá dóttur minni (segi ekki hverri þeirra) & svo ætlar Slauga að vera óþekkari um helgina þessa en hún var um seinustu;)

Helga Guðrún & Eyrún eru alltaf að snjóbrettast....þær vilja fara að draga mig með - agglavega skíðz en ég er að verða uppiskroppa með afsakanir svo það er aldrei að vita hvað verður;) En við sjáum bara til - ég vil þá agglavega hafa video-cameruna með;)

Set svo inn myndir bráðlega frá helginni (þið vitið hvað það þýðir - koma e-n tíma á þessu ári ;) )

Bið að heilsa....áslaug:***


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 16:57:14 / anna

ég ræði ekki við þig hérna kolbrjálaðan af áfengisvímu

Jæja sunnudagurinn heilsar manni hérna í sveitinni og hefur maður afrekað ýmislegt þessa helgina!

sveitaskvisur þið eruð svo yndislegar:**

föstudagurinn fór í skóla og ræktina og svefn en ég svaf meira að segja af mér leik gegn Aftureldingu en fór ég í svo alveg kostulegt partý um kvöldið:lol: en kvöldið náttúrulega fór miklu betur en ég þorði að vona og hver lét sjá sig í Borgarfjörðinn, en það var að sjálfsögðu hún Áslaug en hún á víst ennþá eftir á fá jólapakkann sinn þar sem ég gleymi að setja hann í póst eða gleyma að taka hann með til hennar! viltu bara ekki að segi þér hvað þú fékkst í jólagjöf frá mér?:)

 

laugardagurinn var svo líka kostulegur en morguninn byrjaði með legusári á mjöðminni, hné ónýt, ökkli bólgin og skemmtilegar úrfestingar...! :lol: en allavega festi PólyEster sig:lol: sem Skaðvaldur að sjálfsögðu leysti en ég vil meina að ég gerði mesta gagnið í bílnum gargandi og syngjandi ;) svo fórum ég, Valdi, PólyEster, Margrét og Alla í bgn og fengum okkur að éta á The Horny Place (Hyrnan) þar var farið yfir kostulegar lýsingar gærkvöldsin, næturinnar og morgunins og komumst við að þeirri niðurstöðu að nýr saumaklúbbur verður að vera stofnaður þar sem við kunnum öll fimm að sauma;) en annars fór ég svo í bæinn og sá litlu frænku mína sem er vikugömul í dag og hún var já eins og lítið barn...! horfðum á ágætislandsleik hjá Sigrún og átum góðan mat og fórum svo til afa....svo þegar heim var komið kíktu Valdi og Margrét í kaffi til mín og síðast þegar ég frétti af þeim voru þau í brjáluðu partýi á Skeljabrekku en ég nennti ekki með þeim þar sem þau ætluðu að kíkja á allra kvikinda angels partý:lol:

sunnudagurinn er klikkaður fór á fætur og fór að spassast með lille bro á sexhjólinu í snjónum þar sem drengnum tókst að festa okkur tvisvar á 2 mínútum, hann er flottur;) svo fór ég á hestbak sem var alveg ólýsanlega frábært fór á Kristal og Breka og mér líst svo vel á þá báða!annars var ég að enda við sálfræðiverkefni og ætla að horfa á leikinn og klára svo frönskuverkefni og svo út á skaga að hlæja með hópnum að því sem hægt er að hlæja að...og trúið mér það er FYNDIÐ!:lol: er farin að borða snakk og horfa á landsleik:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 19:26:03 / aslaug

ny lofatalfa!

hæ bara ad profa ad kikja a siduna mina i nyja simanum minum..muhahahaa ;>

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 12:55:09 / anna

hin fyrsta skóla/hrakfallavika!

gleðilegt frí frá skólanum!

loksins komin í sveitina eftir misheppnaða viku í skólanum á Skaganum!:( vikan byrjaði þó ágætlega þar sem ég fór í skólann eftir að hafa fengið hina frábærustu töflu og alla áfanga þangað inn og svo gott spjall með Herði skólameistara sem er ekki svo slæmur eftir allt!:) en allavega svo hófst venjuleg vika á skaganum skóli - æfing - kaffidrykkja - nýtt kaffiherbergi - þreyttur Valdi - fíflalæti o.m.fl. :lol:

en á þriðjudeginum var svo afar venjulegur dagur skóli og æfing og fíflalæti og verð ég að viðurkenna að fá að sofa út þrjá daga vikunnar og vera búin snemma í skólanum er EKKI slæmt:D:D

en það var hins vegar miðvikudagurinn sem var hálf ömurlegur og asnalegur þótt hann hafi byrjað vel! ég fór sem sagt í skólann og svo tók við skemmtilegt Cooper test á fótboltaæfingu um kvöldið jújú stelpan kláraði það eins og að drekka vatn og svo tók við létt æfing sem endaði svo á því að ég stökk upp í skalla með FÁRANLEGA LEIÐINLEGUM OG VANGEFNUM AFLEIÐINGUM!!! sem sagt þegar ég var að lenda þá lenti ég svona skemmtilega vitlaust á löppinni að ég tognaði mjög illa og get ekki stigið í fótinn og var því í hækjum á fimmtudeginum og föstudeginum......mörgum til mikillar skemmtunar:( en þetta var hálfglatað og var ég skíthrædd um að ég væri brotin þangað til ég fékk út úr myndatökunni á fimmtudaginn:) þannig að góðu fréttirnar voru brotleysi en slæmu tognun:) en ég vil þakka spússunum tveimur Ester og Öllu kærlega fyrir að vera yndislegar vinkonur sem hjálpuðu mér mikið!!:** og að sjálfsögðu Margréti fyrir að rétta mér allt og ná í allt og fylgja mér eins og fylgdardama upp í skóla!:)

en svo fór ég upp í sveit með honum Benna reddara þar sem það voru allir búnir svo seint:lol: þar sem það fólk var eins og grískir skólahestar eða já sorry íslenskir graðhestar :lol: en allavega þá er ég komin í sveitina og get núna loksins stigið í löppina:D:D:D:D en ég labba ákaflega asnalega og hægt:( þannig að þá er það komið sem helsta er að frétta nema að það er komin víst ný fjölskylda í skólann, sögusagnir segja að þau heiti víst Georg og Bjarnfreður??? en ég er farin að borða fisk og horfa á Harry Potter í milljónasta skipti:D

yfir og út....og já Áslaug ofurbloggari bara...og hrekkjalómur líka!!!!8|8|

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 17:19:46 / aslaug

Amma hrekkjalómur ....

Hæhæ - jæja það er alltaf jafn gaman í skólanum. Í dag fór ég td. í stæ þar sem ég er eina stelpan með 5-6 strákum. Þeir settust allir saman & ég settist náttla ein á risastórt borð & svo heyri ég þá hvísla hvort þeir ættu að bjóða mér að koma & setjast hjá þeim! Kennarinn ráðlagði mér síðan að gera það -VaNdræðalegt!!- En síðan urðu þeir mjög ósáttir með það að ég gæti eitthvað dæmi sem þeir gátu ekki! Sögðust ekki trúa því að stelpa gæti tekið fram úr þeim!! Ég held að ég ætli ekkert að mæta aftur........langar bara svo að vera ef kennaranum dettur í hug að baka köku úr ansjósum aftur eins og síðast þannig að það verði ólíft í skólanum:haha:

Hringdi í Jóhönnu frænku mína í dag - komst ekki inn á Innu & komst svo að því að Höddi putti hafði gleymt að skrá mig í skólann! Leiðinlegt- en Atli & Jóhann redduðu því...svo nú fer alvara lífsins að taka við ....stúdent í vor segiði? ;)

Síðan er ég komin með lénsbíl! Amma talaði við pabba í gær & ég má nota bílinn á meðan hann er úti á sjó - sem er mjög mikið held ég. Td. kom hann heim í gærmorgun & fór seinnipartinn - þannig að við stúlkurnar gátum bara rennt í skólann á kagganum um 9 - sem er mjög rúmgóður & bara helvíti fínn - aðeins of bónaður hvort sem það er að innan eða utan.

Í gær horfði ég á Knocked up - eða hvernig er það nú skrifað? Við ætluðum að skila henni kl. 10 en svo var hún bara endalaus....Siggó fannst hún hafa hreinlega upplifað alla meðgönguna hjá Issie Stevens. Svo heyrðum við í ömmu setja hurðasprengjur á hurðina og sögðum henni það en hún hætti ekkert og byrjaði að hringja í heimasímann til að svæla okkur út - allt kom fyrir ekki við sáum í gegnum þetta því enginn heilvita maður hringir í 15 mín stanslaust:!: En svo neyddumst við til að yfirgefa herbergið, þurftum að fara að pissa & eyddum um 10 mín í að opna hurðina. Ég gat það svo á endanum með því ða halda fyrir eyrun með öxlinni og þurrka svitann af höndunum (var svo stressuð;) & það stóð heima - gamla búinn að setja 6 hurðasprengjur á hurðina!

...eins gott að siggó heyrði í henni, annars hefði ég fengið hjartaáfall!!!

þar sem það er engin mynd af mér þegar ég googla mig þá set ég hér inn þessa fínu & tilheyranlegu mynd af kvikindinu ;) Njótið vel :D

"hahahaha tók þessa mynd í burtu" þú ert kvikindi!!;) sakna þín skvís:** 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 17:12:26 / aslaug

Fyrsti skóladagurinn

-The new kid in town

Fyrsti skóladagurinn búinn - hann gekk vel. Sigríður þurfti að sjálfsögðu að segja við mig þegar við settumst niður ,,það eru (örugglega) allir að horfa á þig og hvísla hver er þetta eiginlega"!! En ég heyrði ekki ,örugglega, & var alveg í rusli (heheh). En mér leist bara vel á kennarana - einhver svaka undur hottie (er orðið á götunni) að kenna mér sýklafræði - en meðalaldurinn í þeirri kennslustund er 56ár. Ég er einmitt að læra í henni núna. Síðan er fúli & ókurteisi ritarinn farinn að þekkja mig - strax á fyrsta degi en hann kallaði á mig í dag & reyndi að vera eins kurteis & hann gat. Afhverju? -Jú af því að ég var bara ótrúlega kurteis við hana þrátt fyrir að hún spýtti næstum munnvatni á mig af ókurteisi & svona uppsker maður :haha:

Fengum steiktan fisk í hádeginu sem var svo brimsaltaður að það var örugglega ekki búið að útvatna hann (heitir það það ekki??) Annars er þetta mötuneyti .mjög. gott & þvílíkt heimilislegt. Maturinn kostar 450-500kr & er svo MIKLU betri enn á The SKage.. Konan heitir Hugljúf sem er með það (Valdi ertu ekki örugglega að lesa þetta?)

Ég er að fara að vera með í leikritinu fyrir sólrisuhátíðina - eða réttara sagt þá er ég að fara að sjá um búninga & svoleiðis lagað með stelpunum fyrir leikritið. Mætti bara á fund, rétti upp hönd & spurði hvort að ég mætti ekki vera í búningunum & síðan komu Helga, Siggó, Eyrún & fleiri....Já hún Áslaug Katrín var ekki feymin - talaði fyrir framan fullt af ókunnugu fólki (dugleg stelpa). Bónusinn er fulltfullt af partýjum og mikilli vinnu - kynnist fullt af krökkum vonandi. Mínusinn  er hins vegar sá að ég verð að vera kyrrsett hérna fyrir vestan allar helgar fram að páskum & um páskana (hehe-myndi skrifa þetta með ósýnilegu bleki ef ég gæti en vona að fólkið mitt taki þessu ekkert svo-illa :S ) -en við sjáum bara til með það...ég er nú ekki svo ómissandi -

úps. var að fatta að ég þoli ekki & kann ekki að sauma....lét engann vita af því....vonandi þarf ekki að sauma neitt í þessu ..

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24